Markmið leiksins er að spá fyrir um úrslit í hverri umferð. Annarsvegar þarf að spá fyrir um
úrslit leiksins (1,x eða 2) og hinsvegar markamun. Stig eru veitt fyrir þá leiki sem er rétt
spáð fyrir um og safnast stigin þín saman yfir allt tímabilið.
Nokkrir fídusar
• Pikkaðu margar umferðir fram í tímann.
• Skiptu á milli íslenska og enska boltans með einum smelli. Einungis þarf að hafa einn aðgang.
Fyrir hver rétt spáð úrslit fást 3 stig og fyrir réttan markamun fæst 1 stig. Í hverri umferð er valinn einn leikur sem gildir tvöfalt, þ.e. öll stig sem fást fyrir þann leik margfaldast með 2.
Allir sem skrá sig til leiks keppa í Topplistanum. Einnig er hægt að stofna einkadeildir þar sem vinir geta keppt innbyrðis í leiknum.